PostHeaderIcon Margmiðlunarskólinn

PostHeaderIcon Skólasetning Haustið 2010

Skólasetning Margmiðlunarskólans verður haldin 20. ágúst kl 13:00 í matsal Tækniskólans á Skólavörðuholti. Eftir skólasetningu munu nemendum verða sýndur skólinn og fá tækifæri til að spjalla um námið og framtíðina.
 

PostHeaderIcon Framestore

Framestore_logoFramestore er eitt af frægustu eftirvinnslufyrirtækjum í heimi. Íslenska útibúið, sem hefur unnið að tæknibrellum fyrir margar stórmyndir svo sem Sherlock Holmes, Clash of the titans, Salt og Where The Wild Things Are, kom í heimsókn til okkar og var með kynningu á fyrirtækinu og hvernig þau vinna svona efni.  Við eigum von á að þau komi mun oftar til skoða og gagnrýna verkefni nemenda á uppbyggilegan hátt. Þetta mun í framtíðinni skila enn betra starfsfólki útúr skólanum og gera skólastarfið enn líflegra.

Síðast uppfært (Laugardagur, 01. Maí 2010 08:54)

 

PostHeaderIcon MoCap kynning á Skrúfudegi

Á Skrúfudeginum, sem er kynningardagur Tækniskólans, var gestum og gangandi boðið að koma og skoða MotionCapture stúdíoið sem Margmiðlunarskólinn á. Þetta stúdió er hið eina sinnar tegundar á Íslandi. Það voru fjölmargir sem nýttu þetta tækifæri til að sjá þetta og skoða hvað skólinn hefur uppá að bjóða.

Jónsi fékk að máta búninginn á meðan Ari Knörr, kennari við MMS kynnti tæknina fyrir gestum.

 

 

 

Síðast uppfært (Mánudagur, 01. Mars 2010 17:36)

 

PostHeaderIcon Heimsókn í CAOZ

Caoz_Dabbi_Eva_02

Á dögunum var Margmiðlunarskólanum boðið í heimsókn í Caoz. Þar tók á móti okkur Arnar Gunnarsson, sem fór yfir vinnuferlið á kvikmyndinni Þór sem þeir eru að framleiða. Arnar bauð okkur að koma oftar í heimsókn og fylgjast með myndinni verða til. Í Caoz hittum við einnig fyrir útskrifaða nemendur úr MMS og fyrrverandi kennara.

Við þökkum fyrir okkur og hlökkum til að koma aftur.

Caoz_Snaedis

 

PostHeaderIcon Teiknimynd um réttindi barna

Sunna Björk Mogensen og Helga Lóa Kristjánsdóttir sem eru nemendur á þriðju önn í MMS eru að vinna að gerð teiknimyndar í samstarfi við góðgerðarsamtökin Réttindi barna, sem eru ný samtök sem hafa það að leiðarljósi að fræða börn um réttindi þeirra. Þau eru að fara af stað með þeirra fyrsta verkefni sem heitir Segjum nei, segjum frá! og felst í því að búa til teiknimynd um kynferðislegt ofbeldi sem sýnd verður í grunnskólum landsins og vonandi einnig í sjónvarpinu á sérstökum degi gegn kynferðislegu ofbeldi.

Leikstjóri verksins er Felix Bergsson og CCP kemur inn sem ráðgjafi við útfærslu verksins.  

Öll tæknivinna er í höndum Sunnu og Helgu Lóu.

Fyrstu drög að myndinni má sjá hér.

Síðast uppfært (Sunnudagur, 13. Desember 2009 20:29)