PostHeaderIcon Staða nemanda að loknu námi

Staða nemanda að loknu námi

Að loknu námi í margmiðlun útskrifast nemandinn með formlegum hætti og fær útgefið burtfararskírteini þar sem námslok eru vottuð og  tilgreindir þeir námsáfangar sem hann hefur lokið og með hvaða árangri.

 

 

Að útskrift lokinni eiga nemendur m.a. að geta ráðið sig í störf við vefsmíði, hreyfimyndagerð, þrívíddarhönnun, kynningarefnisgerð, auglýsingagerð, kvikmyndagerð, eftirvinnslu kvikmynda og fleira. Námið sem boðið er upp á spannar mikla breidd og kemur inn á starfsvið sem eru enn í mótun í þjóðfélaginu. Erfitt er því að festa hendur á eitthvað eitt starf sem nemandi með margmiðlunarnám getur starfað við. Stefnt er að því að nemandinn: búi yfir nægri kunnáttu til að koma inn á starfsvettvanginn, geti haslað sér þar völl og haldið áfram að sérhæfa sig í starfi. Reynslan sýnir að nemendur hafa að loknu námi, unnið að klippingu og eftirvinnslu kvikmynda, gerð sjónvarpsauglýsinga og unnið að gerð þrívíddar bæði í kvikmyndum og auglýsingum. Auk þess hafa nemendur ráðið sig til stærri fyrirtækja og tekið að sér vinnu í kynningardeildum og m.a. unnið að gerð margmiðlunarefnis. Nemendur geta stofnað sín eigin fyrirtæki sem m.a. taka að sér vefhönnun og gerð kynningarefnis bæði fyrir prent- og skjámiðla og fleira.

 

 

Í náminu er lögð mikil áhersla á hugmyndavinnu, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð sem jafnframt því að læra að nýta sér nýja tækni, getur auðveldlega leitt til nýrra hugmynda og nýsköpunar í þjóðfélaginu. Skólinn leggur áherslu á að útskrifa nemendur með frjóa hugsun og vilja til að fara nýjar leiðir.

 

 

Nemendur hafa farið erlendis í áframhaldandi nám á þessu sviði og þá til frekari sérhæfingar. Á grundvelli náms í Margmiðlunarskólanum hafa þeir fengið inngöngu í virta háskóla sem gera miklar kröfur.

 
  

Nám í margmiðlun

 

(1.–3. önn)

 

 

Nám í margmiðlun á að veita nemendum breiða þekkingu og færni sem nýtist sem haldgóð undirstaða undir verkefnavinnu og nám í sem flestum starfsgreinum á margmiðlunarsviði.

 

Lokamarkmið:

 

Að lokinni þriðju önn er ætlast til að nemandinn:

 
  • kunni skil á sögu margmiðlunar, kvikmynda og hreyfimyndagerðar
  • þekki algengustu margmiðlunarhugtök
  • hafi almenna þekkingu á starfsumhverfi hönnunar- og margmiðlunargreina
  • hafi almenna þekkingu á rekstrarumhverfi fyrirtækja í margmiðlun og geri sér grein fyrir ábyrgð hvers starfsmanns á gæðum og framgangi fyrirtækis
  • geti séð um auglýsinga- og kynningarmál fyrirtækja
  • geti hannað m.a. firmamerki, bréfsefni og veggspjöld fyrir fyrirtæki
  • geti skilað efni til prentsmiðju
  • hafi skilning á forritun
  • geti hannað viðmót fyrir vef
  • geti búið til hreyfimyndir fyrir vefinn
  • geti unnið með hljóð, upptökur, fært yfir á tölvutækt form, hljóðblöndun, hljóðsetningu o.fl. ásamt því að þjappa því fyrir mismunandi miðla
  • geti skrifað handrit fyrir stuttmynd, auglýsingu og kvikun, gert myndhandrit og kvikmyndað eftir því
  • kunni að færa upptekið efni frá stafrænni kvikmyndatökuvél yfir í tölvu, geti klippt það og eftirunnið
  • kunni að þjappa margmiðlunarefni fyrir mismunandi miðla
  • geti gert form í þrívídd og kvikað þau
  • geti stillt lýsingu og unnið með áferðir í þrívíddarforriti
  • kunni að gera margmiðlunardisk og skila af sér til útgáfu
  • geti gert verk- og fjárhagsáætlun fyrir margmiðlunarverkefni
  • geti verkstýrt margmiðlunarverkefni
  • þekki möguleika á framhaldsnámi og störfum að loknu grunnnámi í margmiðlun
 

 

Síðast uppfært (Föstudagur, 10. Apríl 2009 12:11)