Inntökuskilyrði
Miðað er við að nemendur sem hefja nám við Margmiðlunarskólann hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, hafi lokið námi í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum eða lokið námi af listnámsbraut eða tölvubraut, auk þess að hafa góða grunnþekkingu á tölvum og í ensku. Ef umsækjandi hefur mikla reynslu af vinnu við margmiðlun eða skyldar greinar verður það metið sérstaklega. Skólinn getur sett skilyrði um að umsækjandi bæti við sig undirbúningsgreinum og almennum, bóklegum greinum.
Æskilegt er að þeir sem vilja sérhæfa sig í hreyfimyndagerð hafi grunn í fríhendisteikningu sem samsvarar námi í SJL103 og MYL103.
Í lok hverrar annar verða nemendur að sækja um áframhaldandi nám í skólanum og fer það eftir námsframvindu þeirra hvort þeir geta haldið áfram á næstu önn. Ef nemandi fellur í 10 einingum á önninni, þ.e. tveimur fögum þarf hann að taka alla önnina upp aftur, engin undantekning er frá þessari reglu. Ef nemandi fellur í 5 einingum, einu fagi, þá mun sérstök dómnefnd skoða hvort nemandi muni fá að halda áfram á næstu önn og fer það eftir ástundun hans í þessu tiltekna fagi og ástæðu fyrir því að nemandinn náði ekki áfanganum.
Síðast uppfært (Föstudagur, 13. Nóvember 2009 21:30)


