PostHeaderIcon Námsmat

Námsmat

Tilgangur námsmats er m.a. að veita leiðsögn meðan á náminu stendur og að kanna að hve miklu leyti nemandi hefur tileinkað sér þau markmið sem sett eru í viðkomandi áföngum. Nauðsynlegt er að kennarar skilgreini áfangamarkmiðin enn frekar en gert er í námskrá til að þau séu skýr viðmið við námsmat. Kennarar eru hvattir til þess að meta nám nemenda með fjölbreyttum hætti en gæta þess jafnframt að umfang þess og inntak sé í samræmi við kennslu í viðkomandi áfanga.

 

Í kennslunni eru margir möguleikar á því að kanna og meta námsárangur og afkastagetu nemenda. Dæmi um möguleika á útfærslu námsmats eru verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa einir sér eða í samvinnu við aðra sem og skrifleg og verkleg próf sem lögð eru fyrir nemendur, sem og kynningar einstaklinga og hópa á verkefnum á ýmsum stigum í vinnslu þeirra.

 

Sú vitneskja sem námsmatið veitir hjálpar hverjum kennara til nýrrar markmiðssetningar og gefur oft tilefni til breytinga á áherslum í námsefni og vinnubrögðum. Þá gefur námsmatið nemendum möguleika á því að fylgjast með eigin árangri í námi.

Síðast uppfært (Miðvikudagur, 01. Apríl 2009 07:43)