1. önn
ZMF105 Margmiðlunarfræði
Hugmyndavinna, margmiðlun og markaðsfræði
Undanfari
Enginn
Áfangalýsing
Farið í grunnþætti hugmyndavinnu, frá fyrstu hugmynd til útfærslu og gagnrýni. Aðferðir í hugmyndavinnu kynntar og nemendur fá þjálfun til að efla skilning á sjálfum sér sem skapandi verum. Þeir skoða það sem gefur þeim innblástur og nærir sköpunargleðina.
Farið yfir mismunandi gerðir hreyfimynda og kvikmynda með áherslu á innblástur í þróun verkefna.
Áfanginn á fyrst og fremst að opna huga nemenda fyrir hverju því sem stendur að baki sérhvers hlutar í margmiðlun og undirbúa fyrir frekari vinnslu innan þess geira, því er leitast eftir virkni nemenda og málefnalegum umræðum í tímum.
Farið í markaðssetningu og forvinnu stórra margmiðlunarverka (P.D.D.). Verkefni þróuð óháð tæknilegri útfærslu, þ.e. nemendur gera einungis skriflega grein fyrir verkefninu og vinna efni tengt forvinnu.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
- þekki mismunandi aðferðir hugmyndavinnu
- þekki þá miðla sem notaðir eru til margmiðlunargerðar
- geti hannað og útfært margmiðlunarverk
- skilji og geti gert grein fyrir hugtökum margmiðlunar á fræðilegan hátt
- kunni skil á helstu gerðum kvik- og hreyfimynda
- kunni grunnatriði varðandi markaðsetningu á margmiðlunarverkum
- kunni að vinna forvinnugögn fyrir margmiðlunarverk („project definition document“)
Efnisatriði
Undirbúningsvinna, hugmyndavinna, markaðsfræði, hreyfimyndasaga, P.D.D., hljóð, þrívídd, kvikun.
Námsmat
Nemendur skila greinargerðum og verkefnum sem eru metin til einkunna.
ZHO105 Hönnun
Myndvinnsla, tölvuteikning og grafísk hönnun
Undanfari
Enginn en nauðsynlegt að sé tekið samhliða ZHM105
Áfangalýsing
Farið er í tölvuteikningu, umbrot, uppsetningu, myndvinnslu og textameðferð hvort heldur sem ætlað er til prentunar eða til undirbúnings vefhönnunar. Áhersla er lögð á notkun teikni-, myndvinnslu- og umbrotsforrita í hönnunarferlinu og farið í vinnslu allt frá hugmynd til útgáfu fyrir skjá- og prentmiðla. Kynntar eru helstu leiðir til að byggja upp myndræna framsetningu á hugmyndum frá upphafi til endanlegra skila hvort sem er fyrir prentun, ljósvaka eða vefinn. Farið er yfir helstu kosti algengra forrita og hvernig færni í notkun þeirra getur nýst nemendum við flesta þætti náms og vinnu. Fjallað verður um helstu undirstöðuatriði grafískrar hönnunar og viðmótshönnunar, litið á hönnun sem ferli eða sérstaka aðferðafræði og lögð er rík áhersla á hugmyndavinnu.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
- þekki viðmót teikni-, myndvinnslu- og umbrotsforrita
- geti nýtt forritin til að einfalda og flýta framsetningu eigin hugmynda
· kunni skil á notkun helstu teikni- og myndvinnslutóla og hvernig nýta má þau til frumlegrar sköpunar
- sé meðvitaður um hvernig helstu litakerfi í forritum virka og þekki muninn á eiginleikum þeirra
- geti bjargað sér við uppsetningu á síðuútliti þar sem saman koma litagrunnar, texti, teikning og innflutt ljósmynd
- tileinki sér þá möguleika sem forritin bjóða upp á við þróun og rannsóknir á grafískum formum með tilliti til útlitshönnunar, litanotkunar og almennrar framsetningar
- þekki helstu leiðir til samnýtingar ólíkra forrita og skráarsniða til að ná fram því sem óskað er eftir
- geti tekið inn mynd frá skanna eða stafrænni myndavél
- þekki mikilvægi punktsins í framsetningu efnis
- læri muninn á hvernig ljósmyndir/grafík þeir nota fyrir prentun og leysiprentara
- geti skilað af sér efni til prentsmiðju
· kunni skil á grafískri hönnun
Efnisatriði
Leturmeðferð, litanotkun, tækjaslár, sniðmát, leiðarsíður, frágangur fyrir prentun, textavinnsla, myndvinnsla, litir, skönnun, stafræn myndataka, upplausn, punktar, punktaþéttleiki og rastar. Maskar, myndblöndun, litaleiðréttingar, vefmyndir, skjámyndir, prentmyndir, teikningar, teikniborð, skissugerð.
Námsmat
Námsmat byggir á verkefnum nemenda og hvernig þeir standa sig við útfærslu þeirra í tímum. Einnig er tekið tillit til sýnds áhuga og ástundunar ásamt útfærslu og frágangi á verkefnum.
ZHM105 Hreyfimyndagerð
Handritagerð, kvikmyndun og eftirvinnsla
Undanfari
Enginn en nauðsynlegt að sé tekið samhliða ZHO105
Áfangalýsing
Fjallað er um hugmyndavinnu og úrvinnslu í skipulögðu handriti svo ná megi fram góðri framsetningu efnis á áhrifaríkan og myndrænan hátt. Farið í frásagnartækni, verklag og vinnubrögð við handritsgerð og myndhandritsgerð. Farið í grunnvinnu kvikmyndunar, hugmyndafræði, beitingu myndbandsupptökuvélar og lýsingar. Kynntar eru ýmsar aðferðir við tökur, klippingu og tæknibrellur og hvernig myndramminn markar sjónarhorn áhorfandans. Fjallað um grunnþætti stafrænnar myndbandavinnslu. Klippingar og grunnhugtök skýrð. Farið er í uppbyggingu atriða, skiptingu á sjónarhornum, samsetningu og flæði. Farið er í helstu grunnþætti hljóðvinnslu og meðhöndlun á hljóði, s.s. þjöppun, hreinsun, klippingu og einangrun hljóðs, hljóðeffekta og útgáfu. Helstu hugtök, verkfæri og vinnuferli skýrð. Hljóðsetning skoðuð með tilliti til samspils hljóðs og myndar. Farið er í vinnuferli, þjöppunaraðferðir og staðla auk mismunandi eiginleika útgefins myndefnis. Vinnsla á myndefni, þjöppun, útgáfa og dreifing í ólíkum miðlum, t.d. á margmiðlunargeisladiskum, DVD, sjónvarpi og á vefsíðum. Forrit skoðuð sem eru notuð við eftirvinnslu sjónvarpsefnis, kvikmynda og þrívíddar.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
- kunni skil á verklagi og vinnubrögðum við handrits- og kvikmyndagerð
- geti gert myndhandrit í stafrænu formi
- kunni að beita myndbandsupptökuvél
- hafi öðlast tilfinningu fyrir myndbyggingu
- kunni að beita réttri lýsingu við upptökur
- geti beitt fyrir sig ólíkum sjónarhornum
- kunni að klippa efni í tölvu og vinna það til útgáfu
- geti þjappað kvikmynduðu efni saman fyrir mismunandi miðla
- geti hreinsað, klippt og einangrað hljóð og unnið með mismunandi hljóðbrellur
- geti hljóðsett stafrænt myndefni
- kunni skil á öllum helstu þjöppunarstöðlum, veikleikum þeirra og göllum
- viti hvaða möguleika og takmarkanir hver miðill hefur
- öðlist góðan skilning á eftirvinnslu með hjálp ýmissa forrita
- öðlist víðtækan skilning á því hvernig forritin nýtast þeim í raunverulegum verkefnum
- þekki hvernig hin ýmsu verkfæri eru notuð í atvinnulífinu og við hvaða aðstæður ber að nota hvaða verkfæri
Efnisatriði
Skipulagning, undirbúningur, handrit, myndhandrit, sköpunarferli, hugmyndavinna, úrvinnsla, framsetning efnis, frásagnartækni, verklag, vinnubrögð, beiting myndbandsupptökuvélar, hljóðupptökur, lýsing, ábyrgðarhlutverk, tæknibrellur, klipping, samsetning, flæði, hreinsun og einangrun hljóðs, hljóðbrellur, hljóðsetning, samspil hljóðs og myndar, þjöppun, útgáfa.
Námsmat
Verkefni á önn 50%
Lokaverkefni 50%
ZVF105 Vefsmíðar og margmiðlun
Undanfari
Enginn. Þarf að taka samhliða ZHO105 og ZMF105.
Áfangalýsing
Saga og þróun netsins rakin í stuttu máli og helstu vafrar kynntir. Fjallað er um gagnvirkni vefsíðna, tengingar þeirra innbyrðis, umbrot, uppsetningu og stílsnið. Fjallað er um helstu grunnatriði í viðmótshönnun, hvernig notandi ratar um í viðmótinu og hvernig við getum hjálpað honum að rata um vefinn. Farið í staðla og reglur í framsetningu efnis.
Farið er í hönnunarferlið allt frá markmiðasetningu, skipulagningu, grunnteikningu og verkstjórn að hönnun, þróun og viðhaldi. Viðmótshönnun skoðuð út frá notandanum, að hverju hann leitar og hvernig.
Byrjað er á grunnatriðum í notkun margmiðlunarforrita og hvernig hægt er að setja saman hljóð, myndefni og texta á margmiðlunarvef.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
- geti unnið og útfært veftré (leiðakerfi, skipulag), bæði í flæðiriti og texta
- geti hannað vefútlit í texta með hliðsjón af ólíkum forsendum
- kunni skil á uppbyggingu XHTML
- geti notað textaritla við að skrifa og leiðrétta vefsíður
- geti hagnýtt sér stílsnið (CSS)
- geti staðsett efni á síðu með töflum
- kunni skil á grunnatriðum margmiðlunarforritunar
Efnisatriði
Hönnun, úrvinnsla, gagnrýni, veftré, vefskipulag, flæðirit, textameðferð, letur, fyrirsagnir, bakgrunnur, litanotkun, vefútlit, tengsl útlits og innihalds, frásögn, textastaðlar á vef, textaritill, síðulýsingarmál, HTML, töflur, vefsíður, stílsnið, CSS, vefurinn, vefsvæði, vefþjónar, veraldarvefurinn, netið, HTTP og FTP. Tímalína, hnappar, senur.
Flash hreyfimyndaform, tweening, morf, lagskipting, maskar, flögg, tákn, rammar, rammanöfn, hljóðvinnsla, myndvinnsla, þjöppun skráa, margmiðlunarforritun fyrir vef.
Námsmat:
Námsmat byggist á hönnunar- og greiningarvinnu nemenda, skil á þeirri vinnu á vefsvæði og geisladisk. Einnig ástundun í tímum.
Síðast uppfært (Miðvikudagur, 01. Apríl 2009 07:49)


