2. önn
ZMF205 Margmiðlunarfræði
Auglýsingahönnun, hópvinna og verkstjórnun
Undanfari
ZMF105, ZHO105, ZHM105 og ZVF105
Skoðað er mikilvægi verkstjórnunar og gerð verkáætlunar, hvort sem menn beita henni sjálfir eða vinna undir verkstjórn, gildi góðra samskipta við viðskiptavini, gildi faglegra vinnubragða, hvernig ágreiningur getur komið upp, kosti þess að gera framvinduskýrslu og meta árangur á þáttaskilum og í lok verkefna. Einnig hvernig góð vinnubrögð geta haft áhrif á kostnað og þar með aukið möguleika á fleiri verkefnum. Nemendur koma til með að búa til gagnvirkt margmiðlunarverk. Áfanginn byggist á heildstæðu hópverkefni (project) þar sem nemendur vinna í litlum hópum, skipuleggja vinnuna og vinna síðan eftir því skipulagi á gagnrýninn hátt og endurskipuleggja sig eftir þörfum. Farið er í atriði tengd hönnun margmiðlunarverka sem nýta sér lifandi myndir í viðmóti, uppsetningu þeirra, skipulag, útgáfu og eftirvinnslu.
Að nemandinn:
· þjálfist í undirbúningi, vinnslu og frágangi stærri margmiðlunarverkefna
· þjálfist í faglegum vinnubrögðum
· þjálfist í verkaskiptingu og því að vinna í hóp
· fái skilning á mikilvægi verkstjórnunar
· kynnist gerð verkáætlunar
· skilji gildi góðra samskipta við viðskiptavini
· skilji gildi faglegra vinnubragða
· skilji hvernig ágreiningur getur komið upp og hvernig ber að taka á honum
· skilji kosti þess að gera framvinduskýrslu
· geti metið árangur á þáttaskilum og í lok verkefna
· skilji hvernig góð vinnubrögð geta haft áhrif á kostnað
· hafi þróað hæfileika sína til skapandi og gagnrýninnar hugsunar
· geti sett fram niðurstöður sínar á einfaldan og skýran hátt
· geti tekið á virkan hátt þátt í umræðu um verkefni sín og annarra nemenda
Undirbúningur, verklýsing, verk- og tímaáætlun, kostnaðaráætlun, skipulag, verkaskipting, vinnuskýrslur, stjórnandi, samvinna, uppsetning margmiðlunarverk, flæðirit, handrit, myndræn framsetning, hljóðvinnsla, samsetning, notendapróf.
Nemendur vinna í hóp og að sjálfstæðu margmiðlunarverkefni, um er að ræða efni fyrir raunhæfan viðskipavin, æskilegt er að efnið tengist menningu landsins, kennslu eða hjálparstarfsemi. Nemendur halda úti vinnuvefsíðu alla önnina, skila inn verkefnaáætlun, tímaáætlun og fleiru.
ZHO205 Hönnun
Þrívíddarhönnun
Undanfari
ZHO105
Áfangalýsing
Í þessum áfanga er fjallað um helstu atriði í þrívíddarteikningu, hugtök og aðferðir. Hvernig vinnur tölva með þrívíða hluti og hvernig eru þeir skoðaðir í þrívíðum heimi? Farið er í módelasmíði með helstu aðferðum sem notaðar eru. Vinnuferlið við sköpun þrívíddarmynda, allt frá hugmynd og handriti til útkeyrslu og útgáfu. Ítarlega er farið í lýsingu, áferðir og raungeringu. Einnig farið í grunneiginleika mismunandi raungeringaraðferða og reynt að ná fram myndum sem líkjast raunveruleikanum sem mest. Ýmsar brellur og brögð í þrívíddarhönnun kynntar.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
- kunni skil á uppbyggingu módela í þrívídd
- kunni skil á nokkrum tegundum áferða og geti samsett áferðir úr ólíkum þáttum
- kunni að vinna með uppsetningu ljósa og framkalla þá lýsingu sem á við hverju sinni
- kunni að raungera myndirnar út í ýmis skráarsnið
- geti notað mismunandi raungeringaraðferðir
- öðlist reynslu í að gagnrýna eigin verk, sem og annarra með myndbyggingu og hönnun að leiðarljósi
Efnisatriði
Subdivision surfacing, vertex, edge face, segment, polygon, surface, material, normal, diffuse, bump, specular, raytrace, refraction, arrays, ljós, skuggar, myndavélar, linsur, skráarsnið, þjappanir, litaleiðréttingar, lýsingar, áferðir, myndbygging, rendering, Light-Tracer, Radiosity, Mental Ray, Compositing, Global Illumination, Final Gather, Gaustics, Toon Shaders.
Námsmat
Námsmatið byggist á verkefnavinnu nemenda, þátttöku þeirra í umræðum og lokaverkefni.
ZHM205 Hreyfimyndagerð
Teiknimyndagerð, kvikun og eftirvinnsla
Undanfari
ZHM105, ZHO105 og ZVF105
Áfangalýsing
Farið er í uppbyggingu auglýsingahreyfimyndagerðar og mismunandi einkenni þeirra. Straumar og stefnur í auglýsingagerð skoðaðar með áherslu á sjónvarp. Nemendur læri að hanna auglýsingahreyfimynd með mismunandi miðlum og skeyta þeim saman í eftirvinnslu.
Farið verður í grunnatriði teiknimyndagerðar og ýmsar kvikunaraðferðir skoðaðar og æfingar gerðar.
Í áfanganum verður hreyfimyndagerð gerð skil og aðferðir prófaðar.
Einföld tvívíð form notuð til að skapa einfaldan 2d3d heim. Leiknu efni (t.d. green screen eða kvikuðu) bætt inn í þann heim.
Litið verður yfir þær aðferðir og þá tækni sem er notuð í hinum ýmsu gerðum hreyfimynda.
Helstu áhöldum og hjálpartólum gerð skil og prófuð.
Reglur kvikunar raktar og prófaðar.
Aðferðir og frásagnarstíll teiknimyndasagna skoðað. Nemendur spreyta sig í teiknisögugerð.
Unnið með bakgrunna í mismunandi stílum frá skissu til tilbúinna mynda.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
- geti flokkað auglýsingahreyfimyndir eftir markhópum
- geti hannað auglýsingahreyfimynd út frá markhóp vöru/fyrirtækis
- þjálfist í fríhendisteikningu
- læri grunnatriði teiknimyndagerðar
- hafi skilning á eðli og uppbyggingu hreyfimynda
- hafi skilning fyrir tvívíðri kvikun
- prófi mismunandi aðferðir hreyfimyndagerðar
- kunni hin 9 lögmál teiknimyndagerðar, hvernig má nýta þau og í hvaða tilvikum þau eru ekki nýtt
- kunni skil á sögu hreyfimynda frá fornöld til nútímans
- þekki til notkunarmöguleika hreyfimyndafyrir mismunandi miðla
- hafi skilning á myndhandriti, nýtingu þess og kunni að búa það til. Geti sýnt fram á kosti hljóð-myndhandrits (animated storyboard)
Efnisatriði
Mælingar, fjarvídd, kvikun, líkamstjáning, ímyndin, fríhendisteikning, teiknimyndagerð.
Námsmat
Námsmat byggist á verkefnum nemenda og færni þeirra í að kynna verk sín og gera grein fyrir þeim.
ZVF205 Vefsmíðar og margmiðlun
Notendavæn vefhönnun og margmiðlun
Undanfari
ZVF105 og ZHO105
Áfangalýsing
Farið er í ferli vefhönnunar frá grunnuppsetningu að útgáfu, vinnuumhverfi, verkfæri og tæki með áherslu á skipulögð vinnubrögð og vefstjórnun. Uppsetning vefsíðna, tengingar við vefþjóna og kafað er dýpra í hönnun gagnvirkra vefja sem nýta sér lifandi myndir í viðmóti, uppsetningu þeirra, skipulag og útgáfu. Lögð áhersla á hlutverk forritunar til að ná fram aukinni gagnvirkni. Tekist er á við raunhæf verkefni, farið í hugsunina á bak við þau, skipulag, vinnslu og frágang.
Nemendur vinna að heildstæðri vefhönnun fyrir fyrirtæki ásamt margmiðlunarverkefnum. Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi góðrar viðmótshönnunar og fjöldi verkefna verða unnin til að dýpka skilning nemenda á grunnatriðum gagnvirkrar vefsíðugerðar.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
· Geti gert gagnvirkt efni með áherslu á Flash og unnið með 2d, 3d, video, myndir, texta og hljóð
· Fái grunnhugmynd um hvernig gagnagrunnar virka
· Kunna að nota XML
· Læri að nota vefsmíðatól
· Geti hannað vef, skipulag hans og útlit miðað við fjölbreyttar forsendur
· Kunni að vinna hugmyndir að lausn verkefna með þarfir viðskiptavinar í huga
· Kunni notkun helstu hugtaka sem tengjast skipulagi og hönnun vefja
· Kunni skil á notkun stílsniða til umbrots á vefsíðum
· Geti notað vef- og margmiðlunarforritunarmál
· Geti sett upp formsíður og unnið með upplýsingar úr þeim
Efnisatriði
Endurskoðun, þarfir viðskiptavinar, þjöppunarstaðlar, vistun á veftæku formi, þjöppun, gagnasnið, vefhönnunarhugbúnaður, auglýsingar, veftenging, gagnasöfnun, gagnaöryggi, eldveggir, viðmótshönnun, fyrirspurn, form, formsíður, gagnaflutningsstaðlar, samskiptaleiðir, vefkerfi, vefþjónn, action script, hlutbundin forritun, breytur, skilyrðingar, eiginleikar, aðgerðir, ef ... þá, listar, köll, breytur, segðir, lúppur, fylki, strengir.
Námsmat
Námsmat byggist á verkefnavinnu nemenda og þátttöku þeirra í umræðum. Einnig á færni nemenda í notkun tækja- og hugbúnaðar og á árangri þeirra við gerð vefefnis og lifandi efnis. Auk þess er metin þátttaka nemenda í hópverkefnum áfangans.
Síðast uppfært (Miðvikudagur, 01. Apríl 2009 07:51)


