3. önn
ZMF305 Margmiðlunarfræði
Margmiðlunarforritun, rannsóknarvinna og þróun
Undanfari
ZMF205, ZHO205, ZVF205
Áfangalýsing
Nemendur vinna með margmiðlunarforritun og gagnvirkni á þrívíðu efni. Farið yfir grunnatriði gagnasafnsfræði og hvernig unnið er með lengra komnum forriturum. Skoðað hvernig gagnagrunnar eru notaðir í samhengi við margmiðlunarverkefni.
Grunnatriði í tölvuleikjagerð skoðuð með áherslu á upplifun notandans, skipulagningu verkefna og tengingu við þrívídd.
Nemendur vinna hugmyndavinnu og rannsóknavinnu að útskriftarverkefni fjórðu annar. Rannsóknaritgerð er unnin með áherslu á tæknileg úrlausnarefni í útskriftarverkefni nemenda.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
· hafi skilning á rannsóknar- og hugmyndavinnu
· geti unnið með gagnvirkni í þrívídd
· kunni grunnatriði í gagnasafnsfræði
· geti skipulagt tölvuleikjahönnun
· kunni að skrifa rannsóknarritgerð
· skili vel útfærðum tillögum að útskriftarverkefni sínu
· leggi fram ítarlega verklýsingu fyrir útskriftarverkefnið
Efnisatriði
Gagnvirkni í þrívídd, gagnasafnsfræði, tölvuleikjagerð, undirbúningur, rannsóknarritgerð, hugmyndavinna, verkáætlun.
Námsmat
Tæknilegar æfingar unnar á önninni
Undirbúningsgögn fyrir útskriftarverkefni
Rannsóknarritgerð
Verkefni unnin í samstarfi við aðra áfanga annarinnar.
ZHO305 Hönnun
Margmiðlunar- og tölvuleikjahönnun í þrívídd
Undanfari.
ZHM205 og ZHO205
Áfangalýsing
Þessi áfangi fjallar um sköpun efnis fyrir kvikmyndir, tölvuleiki og margmiðlunarefni.
Skilningur nemanda á módelingu, áferðavinnu, ljósum og hreyfinga er aukinn. Skoðuð eru takmörk á hinum ýmsu miðlum svo sem kvikmynda, margmiðlunarefnis og tölvuleikja og ýmsar leiðir til að komast hjá þeim. Nemanda er kennt hvernig karakterar eru módelaðir og útflattir fyrir áferðavinnu. Skoðaðar verða nokkrar aðferðir við að búa til normal map og einnig displacement map og ástæður fyrir notkun þeirra. Farið verður yfir notkun á motioncapture í kvikmyndum og einnig í tölvuleikjum. Athugað hver munurinn á þessum miðlum er með tilliti til upptöku á hreyfingum. Farið verður yfir helstu aðferðir við uppsetningu á módelum, ljósum og áferðum sem fella á inn í lifandi kvikmynd. Viðmótshönnun í þrívídd kennd og hvernig gera má ráð fyrir gagnvirkni og samspili milli ólíkra miðla.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
- Geti valið milli aðferða við gerð hluta með tilliti til lokamiðils
- Kunni að nota 3d og samspil miðla til viðmótshönnunar
- Kunni helstu aðferðir við notkun á normal og displacement mapping
- Kunni skil á helstu aðferðum við upptöku á motioncapture efni
- Geti undirbúið þrívíddarsenu sem fella á inn í kvikmynd
- Geti búið til útflatning af karakter fyrir áferðavinnu
Efnisatriði
Módeling, áferðavinna, motioncapture, sculpting, normalmap, displacementmap, morph, matte painting.
Námsmat
Námsmatið byggist á verkefnavinnu nemenda og þátttöku þeirra í umræðum.
ZHM305 Hreyfimyndagerð
Persónusköpun og kvikun
Undanfari
ZHM205 og ZHO205
Áfangalýsing
Áfanginn byggist á því að nemandi öðlist skilning á hinum marglita heimi hreyfimynda. Á hverju hreyfimyndir byggjast og hvaða lögmál eru til staðar til að láta hreyfimynd ganga upp. Í framhaldi af ZHM205 er skilningur dýpkaður á hreyfilögmálum hreyfimyndagerðar. Farið verður fræðilega yfir hvernig hljóð-hreyfimynd er þróuð frá hugarburði yfir í fullunna afurð tilbúna til sýningar. Aðferðir verða skoðaðar og nokkrar prófaðar.
Farið verður yfir uppsetningu á beinakerfum fyrir karaktera í þrívíddarumhverfi. Skoðað verður hvernig hægt er að nota tilbúin kerfi, auk þess sem nemendum er kynnt hvernig þeir geta skapað sín eigin, bæði fyrir líkama og andlit.
Kíkt á mismunandi tegundir hreyfimynda út frá gerð þeirra, hreyfingum, áferð mynda og fleira. Unnin verða ýmis lítil tilraunaverkefni samfara efninu og í lok vetrarins munu nemendur skila stóru lokaverkefni auk skissubókar um gerð verkefnisins.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
- hafi skilning á eðli og uppbyggingu hreyfimynda
- öðlist dýpkaðan skilningá lögmálum teiknimyndagerðar og hvernig má nýta þau
- skilji hvering nýta má fyrirmyndir í hreyfimyndagerð
- skilji mikilvægi leiklistar og tjáningar
- öðlist skilning á hvernig best er að skipuleggja stærri teiknimyndir í þrívíddarumhverfi
- geti unnið með talsetningu og svipbrigða kvikun
- geti unnið hljóð-myndhandrit (animatic/block test)
- Geti bundið saman beinakerfi við karaktermódel
- Kunni skil á uppsetningu beinakerfa
Efnisatriði
Hugmyndavinna, myndræn hugsun, hljóð- myndhandrit, kvikun, taktur og tímasetningar hreyfinga, talsetning, inntak, áferð, skipulag og undirbúningur.
Námsmat
Skissubók sem nemendur vinna í alla önnina, teikniæfingar, hugmyndavinna, hreyfimynd.
ZHM315 Hreyfimyndagerð
Eftirvinnsla og brellukvikun
Undanfari
ZHO205 og ZHM205
Áfangalýsing
Skoðað hvernig hægt er að ganga lengra með hina ýmsu miðla með aukinni eftirvinnslu (advanced compositing). Samspil þrívíddar og tvívíddar skoðað. Hvernig nota má þrívídd til að bæta við myndskeið leikin eða kvikuð og öfugt. Green screen notað í gagnvirku þrívíddar umhverfi. Samspil ólíkra miðla skoðað og hvernig má nota eftirvinnslu til að spara vinnu þegar unnið er með þrívídd. Farið yfir hvernig þrívíðir hlutir eru settir inn í lifandi myndskeið og hvernig leikarar (video) eru settir inn í þrívídd.
Áfangamarkmið
Að nemandinn:
- geti blandað mismunandi miðlum (þrívídd, tvívídd, video) saman
- geti unnið „brellukvikun“
- viti hvernig eftirvinnsla er notuð með þrívíddinni
- geti skipulagt tökur með tilliti til eftirvinnslu
- viti hvenær best sé að nota 2d og hvenær 3d
- Læri að vinna með „matte painting“ á myndskeiðum
Efnisatriði
Samsetning, þrívídd, tvívídd, video, eftirvinnsla, particles, rpf, raungering, tracking, masking, myndavélar, ljós og keying.
Námsmat
Verkefni sem unnin eru á önninni í samstarfi við aðra áfanga
Tæknilegar æfingar
Lokaverkefni í samstarfi við aðra áfanga
Síðast uppfært (Miðvikudagur, 01. Apríl 2009 07:52)


