PostHeaderIcon 4. önn

ZMF40AK Margmiðlunarfræði

Vinnustofa

 

Undanfari

 

Undanfari: Nemendur þurfa að hafa lokið öllum einingum af fyrstu til þriðju önn, samtals 60 einingum, áður en þeir hefja nám á fjórðu önn.

 

Áfangalýsing


Í þessum áfanga skal nemandi velja sér sérgrein, í samráði við kennara skólans og vinna lokaverkefni sem tengist þeirri grein. Þessi grein þarf að vera innan margmiðlunar-, hreyfimyndagerðar- eða þrívíddarsviðs og vera eðlilegt framhald á námi nemandans við skólann. Nemandi getur til dæmis valið að vinna lokaverkefni í þrí­vídd­arhönnun, hreyfimyndagerð, tölvuleikjahönnun og margmiðlunarforritun. Markmið og tilgang lokaverkefnis skilgreina nemendur sjálfir í samráði við leiðsögukennara  nemandans.

Hlutverk leiðsögukennara er að fylgjast með framvindu vinnu nemandans, hitta hann reglulega og aðstoða eftir þörfum. Nemendur gefa leiðsögukennurum áfangans reglulega skýrslu ásamt því að taka þátt í millikynningum þar sem nemendur og kennarar ræða hugmyndir, skipulag, framvindu verka og gefa ráðleggingar. Vinna nem­anda felst í réttum undirbúningi, skipulagi, hönnun, verk- og tímaáætlun ásamt því að gera verkefnaskýrslu  um framvindu verksins og safna saman öllum gögnum í sambandi við vinnuna  sem gæti m.a. verið  handrit, myndhandrit, kvikhandrit, flæðirit, innihaldslisti og fleira.

Leiðsögukennarar áfangans sjá um að fá fyrirlesara sem starfa á hinum ýmsu svið­um margmiðlunar. Einnig gæti verið um að ræða fyrirlestra um markaðsmál, stofnun fyrirtækja, rekstur og slíkt. Tilgangur þess að fá inn slíka fyrirlesara er að nemendur fái innsýn í starfsvettvang margmiðlunarfyrirtækja.

 

Lýsing á sérgreininni Þrívíddarhönnun

Nemendur skoða grunnhugmyndir á bak við persónusköpun, hvernig persóna á að líta út miðað við tiltekna eiginleika? Hvernig kemur hún til með að haga sér í ákveðnum aðstæðum, hvernig bregst hún við? Nemandinn býr til áætlun um framvindu verksins og myndhandrit sem borið er saman við lokaútkomu tímaramma. Fjallað er um uppsetningu netvinnslu sem gerir það kleift að nota fleiri en eina tölvu til að vinna að sömu mynd. Skráskipulag slíkra kerfa er einnig skoðað.

 

Nemendur þurfa að setja sér áfangamarkmið í samráði við umsjónarkennara sem byggist á þeirri sérgrein sem þeir velja sér:

 

Áfangamarkmið þrívíddarhönnunar geta t.d. verið:

Nemandi geti:

  • sett saman stuttmynd eftir eigin hugmyndum
  • unnið persónusköpun

·         unnið módelsmíði

  • unnið áferðavinnu
  • unnið lýsingu
  • unnið hreyfingu
  • unnið meðferð myndavéla
  • unnið útkeyrslu mynda með hjálp margra tölva
  • unnið uppsetningu netvinnslu (e. netrendering)
  • séð um skipulag skráakerfa í netvinnslu

 

 

Lýsing á sérgreininni Hreyfimyndagerð

Nemendur skoða grunnhugmyndir á bak við persónusköpun, hvernig á persónan að líta út miðað við tiltekna eiginleika? Hvernig kemur hún til með að haga sér í ákveðnum aðstæðum, hvernig bregst hún við? Nemandinn býr til áætlun um framvindu verksins og myndhandrit sem borin eru saman við lokaútkomu tímaramma. Farið yfir tímasetningar og takt hreyfinga, inntak og áferð. Skoðað hvernig eðli og væntanleg notkun á verki stýrir vali á hvaða vinnsluaðferð er notuð. Mikilvægi skipulags og undirbúnings undirstrikað.

 

Nemendur þurfa að setja sér áfangamarkmið í samráði við umsjónarkennara sem byggist á þeirri sérgrein sem hann velur sér:

 

Áfangamarkmið hreyfimyndagerðar geta t.d. verið:

Nemandi geti:

  • sett saman stuttmynd eftir eigin hugmynd
  • gert verkáætlun og framvinduskýrslu
  • unnið persónusköpun
  • unnið myndhandrit
  • búið til kvikun
  • eftirunnið

 

 

 

Lýsing á sérgreininni Margmiðlun

Miðlun upplýsinga á stafrænu formi til notkunar á Netinu, sýningarskjám og til dreifingar á geisladiskum. Nemendur leggja mikla áherslu á viðmótshönnun og á beitingu ólíkra aðferða við úrlausn verkefna og samþættingu ólíkra miðla.  Einnig er lögð áhersla á samskiptamöguleika notenda, allt eftir því hvers eðlis margmiðlunarverkið er.    

 

Nemendur þurfa að setja sér áfangamarkmið í samráði við umsjónarkennara sem byggist á þeirri sérgrein sem hann velur sér:

 

Áfangamarkmið margmiðlunar geta t.d. verið:

Nemandi geti:

  • gert verkefnaáætlun
  • flokkað og skipulagt efnisinnihald
  • gert skipurit/veftré
  • gert flæðirit yfir gagnvirkni verksins
  • hannað viðmót verksins
  • gert handrit að talsetningu
  • séð um hljóðsetningu
  • séð um myndvinnslu
  • sett saman verkið í samsetningarforriti
  • forritað verkefnið
  • séð um frágang og notendaprófanir

 

 

Námsmat

               

Námsmatið byggist á verkefnavinnu nemenda, umræðum, fundum og millikynningum, mætingu á fyrirlestra, gerð verkefnavefsíðu og lokaverkefnis sem unnið er að gegnum allan áfangann og kynnt að lokum á einni stórri lokakynningu.

Síðast uppfært (Miðvikudagur, 01. Apríl 2009 07:53)