Margmiðlunarskólinn
Heimsókn frá Tékklandi
Í dag fengum við heimsókn frá fyrrverandi nemanda Margmiðlunarskólans. Bernharð Aðalsteinsson er útskrifaður frá MMS og fór í áframhaldandi nám í hreyfimyndagerð í Prag. Í Tékklandi er mjög sterk hefð fyrir „stop motion“ hreyfimyndagerð og kannast flestir íslendingar við Klaufabárðana sem sýndir hafa verið í sjónvarpinu. Það eru einmitt frumkvöðlar þeirra þátta sem eru að kenna í honum Benna. Síðast uppfært (Sunnudagur, 19. Apríl 2009 10:19)




Nú eftir áramót fengu útskriftarnemendur Margmiðlunarskólans nýja vinnuaðstöðu hér í skólanum. Vinnuaðstaðan er á fyrstu hæð Vörðuskóla í stofu 612 sem áður var bóknámsstofa, við hlið stofunnar er stór gangur sem er búið að breyta í upptökustúdíó. Kennarastofa margmiðlunarskólans er á sömu hæð og nýtist hún einnig sem viðtalsherbergi. Tækjabúnaður, ný borð og stólar voru keyptir í stofuna. Nemendur geta nú unnið óareittir að útskriftarverkefnum sínum í stofunni sem tilheyrir eingöngu Margmiðlunarskólanum.
