Margmiðlunarskólinn
Útskriftarsýning Margmiðlunarskólans
Útskriftarsýning Margmiðlunarskólans var haldin á Broadway föstudaginn 9. maí. Sýningin var hin glæsilegasta og eiga útsrkiftarnemar heiður skilinn fyrir gott skipulag og undirbúning. Ragnar Freyr Guðmundsson stóð í brúnni og kynnti verkefnin auk þess að miðla af viskubrunni sínum við góðar undirtektir áhorfenda.
Í vor útskrifast 18 nemendur frá Margmiðlunarskólanum, útskriftarverk þeirra eru fjölbreytt og lögðu þeir mikið á sig við að gera þau sem veglegust. Verkefnunum má skipta upp í þrjá meginflokka; margmiðlunarverk, hreyfimyndir með blandaðri tækni og þrívíddarteiknimyndir.

Síðast uppfært (Mánudagur, 29. Desember 2008 19:40)