PostHeaderIcon Margmiðlunarskólinn

PostHeaderIcon Nordisk Panorama

MMS er búinn að vera í samstarfi við Nordisk Panorama kvikmyndahátíðina sem var núna 25-30 september.  Þar unnu nemendur MMS og meistaranemar í hagnýtri fjölmiðlafræði að gerð stuttra heimildarmynda innslaga (2 mín) í tengslum við hátíðina.  Nemendur í rafeindavirkjun munu síðan sjá um að streyma efninu út á veraldarvefinn meðan á hátíðinni stendur.  Auk þess verða myndirnar sýndar á skjá á sérstöku kaffihúsi í Regnboganum sem sett verður upp í tengslum við hátíðina. Myndirnar eru komnar á vefin á slóðinni: http://www.nordiskpanorama.com/NP_TV-583/

Síðast uppfært (Fimmtudagur, 01. Október 2009 16:51)

 

PostHeaderIcon Heimsókn í Rúv

Á dögunum fóru nemendur sem nú eru á þriðju önn í mms, í heimsókn til Rúv. Þar tók á móti okkur Davíð Jón Ögmundsson sem kynnti fyrir okkur undirbúning á "greenscreen" og "tracking" upptöku. Eftir þá kynningu bauð hann okkur að skoða eftirvinnslu deildina og fór yfir það hvernig nokkur rúv innklipp voru unnin.

Við þökkum Davíð, sem er fyrrverandi nemandi í mms, kærlega fyrir að bjóða okkur.

Síðast uppfært (Laugardagur, 19. September 2009 13:04)

 

PostHeaderIcon Verkefnin í sjónvarpið

Það hlýtur að teljast gott að verkefni nemenda, sem eru ekki hálfnaðir í gegnum skólann, séu notuð sem raunveruleg verkefni  og send í útsendingu?

Svo er raunin með nokkur verkefni sem hafa verið unnin í mms. Þessi verkefni eru unnin í samstarfi við ýmis samtök og „non Profit“ stofnanir til þess að gera þau sem raunverulegust. Sem dæmi má nefna verkefni sem sést hafa undanfarið eru auglýsingar fyrir  blóðbankann, rauðikrossinn og kvennaathvarfið. Skólinn vill óska nemendum sínum til hamingju með þann árangur.

 

Síðast uppfært (Sunnudagur, 19. Apríl 2009 16:42)

 

PostHeaderIcon Útskrift 2009

Útskrift Tækniskólans fór fram í Háskólabíói í dag. Þar útskrifuðust frá Margmiðlunarskólanum 20 nemendur. Þessi útskriftarhópur er einn sá öflugasti sem komið hefur út úr skólanum frá upphafi og sýndi það sig þegar Tækniskólinn veitti verðlaun fyrir bestu einkunnirnar.

Sunna Rún Baldvinsdóttir hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í Margmiðlunarskólanum.

Ingólfur Sigfússon hlaut verðlaun frá margmiðlunarfyrirtækinu Gagarín fyrir framúrskarandi námsárangur og auk þess fékk hann verðlaun fyrir bestan árangur  í öllum Upplýsingatækniskólanum.

Kennarar Margmiðlunarskólans vilja óska þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Síðast uppfært (Laugardagur, 23. Maí 2009 21:03)

 

PostHeaderIcon Samvinna Margmiðlunarskólans og Gullsmiðanema við Tækniskólann

Undanfarið hafa kennarar og nemendur MMS verið að prófa sig áfram með tölvustýrða fræsivél sem framleiðir frumgerðir af hlutum sem hannaðir eru í þrívídd. þessir hlutir verða svo steyptir í eðalmálma hjá gullsmiðunum.  Sem dæmi um hönnun má nefna bindisnælur, hálsmen og útskriftarhringa sem hannaðir hafa verið í skólanum.

Síðast uppfært (Sunnudagur, 19. Apríl 2009 13:02)