1. Forsíða
  2. Ljóðasamkeppni grunnskóla | Skilafrestur framlengdur

Ljóðasamkeppni grunnskóla | Skilafrestur framlengdur

Skilafrestur til að senda inn ljóð hefur verið framlengdur til 12. desember.

Í tilefni af degi íslenskrar tungu 16. nóvember næstkomandi efnir Menntamálastofnun til ljóðasamkeppni grunnskólanema, Ljóðaflóð, í samvinnu við KrakkaRúv. Við hvetjum nemendur til að virkja sköpunarkraftinn og senda inn ljóð á fjölbreyttu formi. Það geta verið bundin ljóð og óbundin, ferskeytlur, limrur, hækur, tönkur, myndljóð o.fl., sannkallað ljóðaflóð!

Dómnefnd velur bestu ljóðin á yngsta stigi, mið- og unglingastigi og fá vinningshafar afhent bókaverðlaun og viðurkenningarskjal. Úrslit keppninnar verða tilkynnt í  janúar 2023, bæði á vefmiðlum MMS og á KrakkaRúv þar sem vinningsljóðin verða flutt.

Við hvetjum kennara til að undirbúa nemendur til þátttöku; lesa ljóð og ræða upplifun, innihald og mismunandi ljóðform. Á Ritunarvefnum er margs konar fróðleikur um ljóð ásamt skemmtilegum fræðslu- og hvatningarmyndböndum um skapandi skrif. Á safnvefnum Dagur íslenskrar tungu má nálgast stuttar og hnitmiðaðar bragfræðileiðbeiningar til kennara og einnig bendum við á bækurnar Bragfræði og Limrur fyrir unglingastig grunnskóla. 

Nemendur geta annaðhvort samið sitt eigið ljóð eða haft samvinnu við aðra. Þá væri t.d. upplagt að bekkurinn skoðaði í sameiningu þau ljóð sem senda á í keppnina en vanda þarf til verka hvað varðar innihald, frágang og uppsetningu. Umfjöllunarefni ljóðanna er frjálst, þau geta verið um allt það sem brennur á þátttakendum.

Skilafrestur er til og með 6. desember 2022.

Mikilvægt er að merkja hvert ljóð með nafni höfundar, bekk og skóla.
Senda má ljóðin í keppnina rafrænt á netfangið [email protected] eða með bréfpósti:
Menntamálastofnun
Ljóðaflóð
B.t. Elínar Lilju Jónasdóttur
Víkurhvarfi 3
203 Kópavogi

 

 

skrifað 05. DES. 2022.