Kristín Gísladóttir er fædd 1973. Hún lauk B.Ed. – prófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 2004. Kristín er kennari á yngsta stigi í Ölduselsskóla í Reykjavík.
Verk unnin fyrir Menntamálastofnun
- Álfur
- Margt skrýtið hjá Gunnari
- TX-10
- Gagga og Ari
- Rumur í Rauðhamri
- Íslenska á yngsta stigi – veftorg (ásamt fleiri höfundum)
- Íslenska í 1. og 2. bekk - Handbók kennara (ásamt fleiri höfundum)
Viðurkenningar:
- Viðurkenning úr Minningarsjóði Ásgeirs Björnssonar fyrir Lokaritgerðina: „Félagsleg Fiðrildi“ úr KHÍ árið 2004.
- Íslensku menntaverðlaunin árið 2007.
- Hvatningarverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur ásamt fleiri kennurum úr Ölduselsskóla árið 2009 fyrir Íslensku stöðvar.