Fallorðaspilið er ætlað til að æfa börn í beygingu íslenskra fallorða, einkum nafnorða, en einnig fornafna og lýsingarorða. Það er einkum hugsað fyrir börn með hægan málþroska eða málröskun á yngsta stigi grunnskólans en nýtist einnig börnum sem læra íslensku sem annað mál og öðrum sem geta þurft á tímabundnum stuðningi að halda.