1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Íslam - Að lúta vilja guðs - Fræðslumynd

Íslam - Að lúta vilja guðs - Fræðslumynd

  • Höfundur
  • Terra / Sigurður Ingi Ásgeirsson
  • Vörunúmer
  • 45039
  • Skólastig
  • Miðstig
  • Unglingastig
  • Útgáfuár
  • 2003
  • Lengd
  • 20 mín.

Myndaflokkurinn Trúarbrögð mannkyns fjallar um nokkur helstu trúarbrögð jarðarbúa. Í hverri mynd er sagt frá fjölskyldu og ýmsum siðum er tengjast trú hennar. Fléttað er inn upplýsingum um trúarbrögðin, svo sem um stofnanda trúarinnar og upphaf hennar, útbreiðslu, trúarskyldur, guðshús og helgistaði.

Yousef Ingi, sem á heima í Breiðholtinu, fastar í Ramadan mánuði ásamt foreldrum sínum og trúarsystkinum í félagi múslima á Íslandi. Í lok föstunnar er haldin hátíð er nefnist Id´al Fitr. Við fylgjumst með undirbúningi hennar og hátíðarhöldunum sjálfum. Inn í þessa frásögn er fléttað umfjöllun um Múhameð og upphaf íslams, Kóraninn, útbreiðslu trúarinnar um heiminn og áhrif hennar á líf Vesturlandabúa. Helstu kenningar trúarinnar eru útskýrðar og fjallað um fimm stoðir íslams sem eru trúarjátningin, bænin, ölmusan, fastan og pílagrímsferð til Mekka. Myndin er einkum ætluð mið- og unglingastigi grunnskólans. Hún er ítarfefni með bókinni Íslam – Að lúta vilja Guðs. Stuttar leiðbeiningar til kennarans fylgja myndinni. Íslam er fyrsta myndin í flokki um trúarbrögð mannkyns.

Fræðslumyndir Menntamálastofnunar eru aðeins til niðurhlaðs fyrir grunnskóla. Nauðsynlegt er að ip – tölur skóla séu skráðar hjá stofnuninni.



Your ip address doesn't seem to be registered.

If you believe that is in error, please, call us at 514-7500 or use the "Was the material on this page useful?" form below to inform us about it (and be sure to leave your contact info).



Tengdar vörur