Verkefni með Topic Books sem eru röð þemahefta sem ætlað er að örva lestur nemenda á ensku. Heftin, sem eru átta, eru hluti enskuefnisins
Portfolio fyrir 4.–7. bekk. Í Efni til ljósritunar 2 er að finna verkefnablöð úr fjórum síðari heftunum, Children of the World, Going Places, Heroes og Out in Space. Verkefnablöðin hafa að geyma ýmsar gerðir af lesskilningsverkefnum, Check your reading!, What´s the word?, Word search, Crossword puzzle, Match it! Missing words og True or false? Í verkefninu Do research eru nemendur hvattir til að sækja sér viðbótarupplýsingar á Netið. Að auki eru tillögur að smáverkefnum með langflestum textum í heftunum eða á hverju verkefnablaði í þessari bók. Svör við verkefnunum eru aftast í heftinu.