Lestrarkennsluefni sem býður upp á fjölbreytt vinnubrögð. Áhersla er lögð á að kenna heilar orðmyndir ásamt því að beita hljóðaaðferð.
Lesmál lestrarbókarinnar skiptist annars vegar í létt lesmál, ætlað byrjendum í lestri, og hins vegar þyngra lesmál sem m.a. getur nýst nemendum sem þegar eru farnir að lesa. Í bókinni fléttast kennsla stafa og orða inn í frásögn af tvíburasystkinunum Atla og Önnu í leik og starfi.