Smábókaflokknum er skipt í fimm þyngdarstig og er Vinir Afríku í 5.flokki.
Einar og Tinna ákveða að halda flóamarkað. Þau safna gömlu dóti til að selja. En hvað ætla þau að gera við peningana? Lestu um það í bókinni.
Smábækur Menntamálastofnunar eru einkum ætlaðar börnum á yngsta stigi grunnskólans sem eru að læra að lesa. Reynt er að höfða til ólíkra áhugasviða barnanna með innihaldsríkum texta og ríkulegum myndskreytingum þrátt fyrir einfalda framsetningu.