Í framhaldi af fundi samráðshóps um rafræn próf hafa Menntamálastofnun og mennta- og menningarmálaráðuneytið ákveðið að endurskoða dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 9. bekk skólaárið 2017 til 2018.
Áður hafði verið tilkynnt með bréfi dagsettu 13. desember 2016 að ætlunin væri að hafa tvo prófdaga í 9. bekk. Horfið verður frá því fyrirkomulagi og prófað á þremur dögum þannig að hver námsgrein fær sinn prófdag.
Eftirfarandi prófdagar verða því í 9. bekk skólaárið 2017 til 2018:
| Vikudagur | dagsetning | bekkur | fag | próftími | 
| Miðvikudagur | 7. mars 2018 | 9. bekkur | íslenska | 150 mínútur | 
| Fimmtudagur | 8. mars 2018 | 9. bekkur | stærðfræði | 150 mínútur | 
| Föstudagur | 9. mars 2018 | 9. bekkur | enska | 150 mínútur | 
Tvær próflotur verða haldnar á prófdögum en hver nemandi þreytir hvert próf einungis einu sinni. Miðað er við að fyrri lota hefjist klukkan 8:30 að morgni og sú seinni kl. 11:30. Skólastjóri skipuleggur hvenær nemendur þreyta próf.
Með tilkomu rafrænna prófa hefur skólastjóri sveigjanleika til að hefja próf 30 mínútum fyrir eða eftir viðmiðunartíma.
Ekki verður breyting á prófdögum fyrir 4. og 7. bekk skólaárið 2017-2018.

