1. Home
  2. Fjölþjóðleg skýrsla um starfshætti og viðhorf kennara og skólastjóra á unglingastigi grunnskóla

Fjölþjóðleg skýrsla um starfshætti og viðhorf kennara og skólastjóra á unglingastigi grunnskóla

Meðal þess sem einkennir unglingastig grunnskóla hérlendis í rannsókn Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) á 48 löndum er:

  • Starfsmannavelta í íslenskum grunnskólum er svipuð og á hinum Norðurlöndunum en lægri en að jafnaði í aðildarríkjum OECD og þátttökuríkjum í TALIS-rannsókninni.
  • Ríflega helmingur kennara upplifir streitu í vinnunni og er það ívið hærra hlutfall en að jafnaði í samanburðarlöndum.
  • Hérlendis tengist streita þó síður álagi vegna undirbúnings kennslu eða yfirferðar á prófum og verkefnum, heldur fremur breytilegum kröfum ríkis og sveitarfélaga og álagi vegna fjarvista kennara.
  • Flestir kennara segja anda samvinnu og gagnkvæms stuðnings ríkja meðal starfsfólks skólanna og að það sé hvatt til að sýna frumkvæði.

Út er kominn annar hluti TALIS-skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um unglingastig grunnskóla. Í rannsókninni eru kennarar og skólastjórar í 48 ríkjum spurðir um endurgjöf, starfsánægju, skólabrag, ábyrgð, mat á störfum kennara og margt fleira. Á Íslandi voru allir skólastjórar og kennarar á unglingastigi grunnskóla í úrtaki rannsóknarinnar og var svörunin um 75%. Menntamálastofnun hefur tekið saman sérstaka skýrslu úr gögnum TALIS-rannsóknarinnar, þar sem fjallað er um helstu niðurstöður fyrir íslenskt skólakerfi og þær bornar saman við niðurstöður annarra þátttökuríkja, Norðurlandanna sérstaklega.

Auk ofangreindra niðurstaðna kemur m.a. fram að endurgjöf til kennara er mun sjaldgæfari á Íslandi og öðrum Norðurlöndum en innan OECD almennt, en virðist þó fara vaxandi. Þá er fremur fátítt hér á landi að skólastjórar segi skólann vera í samkeppni við aðra skóla um nemendur.

Íslenska skýrslu Menntamálastofnunar má nálgast hér, en almenna skýrslu um TALIS rannsóknina (á ensku) má nálgast hér.

skrifað 25. JúN. 2020.