1. Home
  2. Íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt

Íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt

Skráningar vegna næstu íslenskuprófa fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt hefjast 8. mars og standa til 19. apríl. Athugið að ekki er hægt að skrá sig utan skráningartímabils. Mímir – símenntun hefur umsjón með skráningu og gefur upplýsingar um íslenskuprófið. Prófgjald er 40.000kr og óendurgreiðanlegt eftir skráningu. Niðurstöður verða sendar rafrænt á netfang sem skráð er við skráningu.

Skráning í prófið er rafræn en hér er hlekkur á skráningu.

Prófin verða haldin á eftirfarandi stöðum:

Ísafjörður  14. maí 2024 kl. 13:00.

Egilsstaðir  15. maí  2024 kl. 13:00.

Akureyri    16. maí 2024 kl. 13:00.

Í Reykjavík   21. - 29. maí 2024 kl. 9:00 og 13:00.

skrifað 16. FEB. 2024.