Kennsluleiðbeiningar fyrir bókina Gullvör – kennslubók í málfræði fyrir unglingastig eru nú aðgengilegar á vefnum.
Í bókinni er farið yfir helstu þætti málfræðinnar, dæmi eru sýnd og verkefni fylgja til þjálfunar. Þetta er endurskoðuð útgáfa bókarinnar sem lengi var kennd á grunnskólastigi.
Höfundur er Ragnar Ingi Aðalsteinsson.
Lausnir við verkefnum eru á læstu svæði kennara.
Bókin er einnig aðgengileg á rafrænu formi.