Í dag fer fram rafræn kynning á námsefninu Yes we can 5 á Zoom. Kynningin hefst kl. 14:30 en hér er hlekkur á kynninguna
Louise Holst Tollan, annar höfundur efnsins, mun kynna hugmyndafræði og uppbyggingu efnisins og fer kynningin fram á ensku. Eftir þá kynningu er áætlaður tími í umræður bæði við Louise og eins varðandi vefefnið sem fylgir Yes we can efninu.
Yes we can 5 er fyrsta bókin sem gefin er út í væntanlegum flokki sem inniheldur heildstætt námsefni í ensku fyrir yngsta – og miðstig en alls verða bækurnar sex talsins. Í námsefninu er lögð áhersla á að auka hæfni nemenda til þess að nota tungumálið sem lifandi verkfæri í fjölbreyttum tilgangi og við ólíkar aðstæður. Efnistök eru úr hversdagslífi nemenda og áhersla er lögð á samfelldan texta sem höfðar til áhugasviðs þeirra ásamt fjölbreyttum verkefnum sem byggja á textanum.
Efnið samanstendur af nemendabók, verkefnabók, rafbók, hljóð – og hlustunarefni, gagnvirkum æfingum og kennsluleiðbeiningum á vef.