Ákveðið hefur verið að Menntamálastofnun taki að sér verkefnabanka Skógræktarinnar um útinám, Lesið í skóginn. Verkefnin í bankanum verða gefin út á rafrænu formi og miðlað til skóla landsins.
Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar, undirrituðu samninginn á starfstöð Skógræktarinnar að Mógilsá við Kollafjörð föstudaginn 22. nóvember.
Í verkefnabankanum Lesið í skóginn er að finna útikennsluverkefni fyrir öll aldursstig grunnskólans í öllum námsgreinum og vinna má verkefnin allt árið um kring. Samkvæmt samningnum endurútgefur Menntamálastofnun verkefni bankans á rafrænu formi. Jafnframt verður bætt við nýjum verkefnum sem snerta loftslagsmál og kolefnisbindingu.
Í nýju útgáfunni gera Skógræktin og Menntamálastofnun eftirtaldar breytingar á verkefnabankanum Lesið í skóginn:
- Endurskipuleggja verkefnabankann þannig að hann fjalli um tré og skóg frá fræi að fullþroska skógi, þ.e. ræktun, umhirðu og nytjar skóga
- Semja fimm til tíu verkefni sem snúa að kolefnisjöfnun og bindingu
- Bæta stuttum inngangi við verkefnabankann um skógartengt útinám, búnað, áhöld, efnisöflun, markmið þess og helstu einkenni
- Tengja hvert verkefni við hæfniviðmið í aðalnámskrá í viðeigandi fögum
- Hýsa verkefnabankann á rafrænu formi á vef Menntamálastofnunar og gera aðgengilegan fyrir skóla landsins
- Kynna verkefnabankann grunnskólum og skólastjórnendum
Markmiðin með endurútgáfu þessa verkefnabanka eru:
- Að bjóða kennurum upp á aðgengileg verkfæri til að vinna með hæfniviðmið aðalnámskrár á flestum greinarsviðum og grunnþáttum menntunar í anda sjálfbærni
- Að efla tengingu nemenda, kennara og skóla við umhverfi sitt
- Að efla tengingu nemenda, kennara og skóla við íslenska náttúru
- Að efla þekkingu á og vitund um gildi skógarins
Vonast er til að þetta muni nýtast vel til skógartengds útináms á öllum skólastigum og jafnframt í sí- og endurmenntun almennings.