Menntamálastofnun hefur tekið saman gögn um nemendur í íslenskum framhaldsskólum á vorönn 2021.
Samantektin fjallar um umsóknir og innritun annars vegar og um samsetningu framhaldsskólanema í heild hins vegar. Í henni má m.a. sjá skiptingu nemenda eftir námsleiðum, kynjum og aldri auk þess sem fjölmennustu námsgreinarnar eru skoðaðar sérstaklega.
Hér má sjá samantekt fyrir haustönn 2020.