Komin eru út veggspjöld með hæfnirömmum um íslensku sem annað tungumál úr kafla 19.4 í aðalnámskrá grunnskóla frá árinu 2021.
Hæfnirammarnir eru fyrir forstig, 1. stig., 2. stig og 3. stig og ná yfir öll hæfnisvið tungumálanáms: hlustun, lestur, talað mál og ritun.
Kallað var eftir slíkum veggspjöldum frá kennurum sem kenna íslensku sem annað tungumál og vonandi eiga þau eftir að nýtast vel.