Við minnum á opið hús Menntamálastofnunar sem fer fram á morgun. Þar verður boðið upp á rafrænar kynningar á nýju námsefni og verkefnum stofnunarinnar frá kl. 10–16.
Boðið verður upp á 15 kynningar í gegnum fjarfundakerfið Zoom. Einfalt er að taka þátt, það eina sem þarf til er nettengd tölva.
Hvert erindi er áætlað um 20–30 mínútur með spurningum og umræðum á eftir. Um kynningarnar sjá ritstjórar námsefnis og fleiri sérfræðingar Menntamálastofnunar auk höfunda efnis í einhverjum kynningum.
Hér má sjá uppfærða dagskrá kynninganna. Athugið að hlekkir á kynningarnar er undir heiti hverrar stofu (Stofa 1.1, Stofa 2.1 o.s.frv.)
Vegna óviðráðanlegra orsaka verður ekki hægt að kynna námsefni í ensku á kynningardegi. Námsefnið er engu að síður væntanlegt og nánari upplýsingar um útgáfu þess verða kynntar innan skamms.
Allt námsefni sem í boði er hjá Menntamálastofnun má finna í Kynningarskrá 2021