1. Home
  2. Opinn kynningarfundur um nýjar PISA-niðurstöður

Opinn kynningarfundur um nýjar PISA-niðurstöður

Menntamálastofnun og Menntavísindasvið Háskóla Íslands boða til opins kynningarfundar um niðurstöður PISA könnunarinnar sem gerð var árið 2018. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 3. desember 2019 í húsakynnum Háskóla Íslands við Stakkahlíð (fundarsalnum Bratta) og hefst kl. 14:30. Skýrsla um niðurstöðurnar verður birt á vef Menntamálastofnunar að morgni sama dags. Á fundinum munu sérfræðingar kynna niðurstöður, greina þær og kynna tillögur að mögulegum framfaraskrefum.

Nánari dagskrá kynnt síðar. 

skrifað 19. NóV. 2019.