Menntamálastofnun stuðlar að framförum í þágu menntunar í samræmi við stefnu stjórnvalda, bestu þekkingu og alþjóðleg viðmið. Stofnunin sinnir víðtæku hlutverki við mat á menntun, þróar og miðlar námsgögnum til nemenda og veitir margskonar þjónustu við menntakerfið.
Auglýst er laus til umsóknar staða sérfræðings í úrvinnslu gagna og prófagerð á matssviði. Um er að ræða 100% starf og laun eru greidd samkvæmt samningum fjármálaráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.
Helstu verkefni
- Prófagerð.
 - Úrvinnsla, meðferð, miðlun og greining gagna.
 - Aðkoma að framkvæmd rafrænna prófa.
 - Aðkoma að framkvæmd PISA.
 - Þátttaka í öðrum verkefnum á matssviði.
 
Menntunar og hæfnikröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
 - Öryggi, nákvæmni, ögun og reynsla í meðferð, greiningu og úrvinnslu gagna skilyrði
 - Þekking og reynsla af tölfræði úrvinnslu skilyrði.
 - Þekking og reynsla af skólastarfi æskileg.
 - Þekking og reynsla af stöðlun mælitækja er kostur.
 - Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
 - Færni í miðlun upplýsinga í mæltu og rituðu máli.
 - Góð íslensku- og enskukunnátta.
 - Góð tölvukunnátta.
 - Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
 - Góðir samskiptahæfileikar.
 
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Óskarsson, sviðsstjóri, í s. 514-7500, netfang: [email protected]
Umsókn um starfið fylgi skrá yfir menntun og starfsferil, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsókn sendist á [email protected] merkt sérfræðingur, matssvið. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Umsóknarfrestur er til og með 26. október 2017.
