Í júní 2020 var samþykkt þingsályktunartillaga á Alþingi um að auka þyrfti fræðslu og forvarnir um kynbundið ofbeldi og áreiti á öllum skólastigum, á frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum, í íþrótta- og æskulýðsstarfi og öðru tómstundastarfi.
Menntamálastofnun fékk meðal annars það hlutverk að safna saman á einn stað efni sem gæti nýst skólum í þeirri forvarnarvinnu ásamt því að auka aðgengi að efni í þessum málaflokki.
Stopp ofbeldi! er safnvefur þar sem safnað hefur verið saman efni víða að og er það opið öllum sem vinna með börnum og ungmennum.
Vonandi nýtist efnið í þessari mikilvægu forvarnarvinnu.
Ef þú veist um efni sem gæti átt heima á vefnum Stopp ofbeldi! er hægt að senda póst með upplýsingum á [email protected]