Vísubotni 2019 voru gerð góð skil í Krakkafréttum fyrir skömmu en þar var sagt frá keppninni og úrslitum hennar.
Í fréttinni voru vinningashafar fengnir til að senda inn myndbönd þar sem þeir lásu upp vinningsvísurnar.
Að þessu sinni bárust samtals 535 vísubotnar frá 21 skóla víðs vegar að á landinu og greinilegt að áhugi fyrir vísnagerð er fyrir hendi í mörgum grunnskólum.