Fulltrúar í ungmennaráði Menntamálastofnunar héldu sinn fyrsta fund 3. febrúar síðast liðinn.
![]()
Á dagskrá fundarins voru mörg mál sem brunnu á fulltrúum svo sem fjármálalæsi í grunnskólakennslu, lífsleiknikennsla, rafræn samræmd könnunarpróf og sálfræðiþjónusta í grunn- og framhaldsskólum.
Gestir fundarins undir einstökum dagskrárliðum voru þeir Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi og Hákon Sigursteinsson, sálfræðingur á Þjónustumiðstöð Breiðholts. Auk þess var á dagskrá að ósk Menntamálastofnunar umræða um einkunnakerfið og mætti Jón Pétur Zimsen, skólastjóri Réttarholtsskóla og kynnti málefnið og svaraði fyrirspurnum.![]()
Fulltrúar höfðu margar góðar tillögur og hugmyndir fram að færa og mun stofnunin vinna með þær áfram. Menntamálastofnun á svo sannarlega hauk í horni með aðgengi að frábæru ungu fólki sem eru sérfræðingar í menntamálum sem snýr að þeim.
