1. Home
  2. Vika6 fer fram dagana 5. til 9. febrúar 2024

Vika6 fer fram dagana 5. til 9. febrúar 2024

 

 

Í tilefni Viku6 hefur Jafnréttisskólinn staðið fyrir gerð fræðslumola á myndbandaformi í samstarfi við UngRÚV sem fjalla um kynlíf og kynvitund ungs fólks út frá ólíkum sjónarhornum. Myndböndin eru birt á heimasíðu UngRÚV, á síðu Jafnréttisskólans og á vefnum Stoppofbeldi hjá Menntamálastofnun. 
Myndböndin er til dæmis hægt að nota sem kveikjur að umræðum í kennslutímum. Þemað í ár er Samskipti og Sambönd. Þemað hentar mjög vel í vinnu með börnum á öllum aldri því við þurfum alltaf að vera að æfa okkur í að eiga góð og heilbrigð samskipti. Með yngri krökkum getum við beint athyglinni að vinasamböndum og samböndum innan fjölskyldu t.d. systkina. Með eldri krökkum getum við rætt um vinasambönd og parsambönd, hvað er heilbrigt og hvað ekki?
Vika6 fer fram dagana 5. til 9. febrúar 2024. 
Sjá frekari upplýsingar hér.

skrifað 02. FEB. 2024.