1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Hvað heldur þú? Um gagnrýna hugsun - Rafbók

Hvað heldur þú? Um gagnrýna hugsun - Rafbók

Open product

Þessu námsefni ætlað að skapa vettvang fyrir nemendur og kennara til að ástunda gagnrýna hugsun. Námsefnið kynnir ákveðin tæki til sögunnar í þessum tilgangi en gagnrýnin hugsun sprettur samt ekki fram nema kennarinn hafi einbeittan vilja til að hleypa henni að. Gagnrýnin hugsun felst ekki bara í tæknilegum hugarþrautum eða rökleikni heldur líka í ákveðnu hugarfari. 

Verkefnin í Hvað heldur þú? þjálfa báða þessa þætti og þeim er raðað niður þannig að nemendur séu smám saman leiddir inn í opnara hugarfar, dýpri ígrundun og flóknari rökleikni. Í efninu er sérstök áhersla lögð á að setja fram verkefni þar sem unnið er með lykilhæfnina gagnrýna og skapandi hugsun eins og hún er skilgreind í aðalnámskrá grunnskóla 2011/2013. Verkefnin miða á ýmsan hátt að því að unnið sé með grunnþætti menntunar í fjölbreyttu samhengi. 

Ætlast er til að nemendur séu virkir í þekkingarleitinni og leiti svara og lausna í gagnrýnu samfélagi sínu. Slík vinnubrögð efla læsi og lýðræðislega hugsun og vinnubrögð, skapa fjölmörg tækifæri til skapandi hugsunar og úrvinnslu, gera kröfu um jafnræði meðal nemenda og starfsmanna og stuðla að heilbrigði og velferð nemenda á víðtækan hátt.

Til að hægt sé að skrifa í bókina á tölvu þarf að hala henni niður og opna í Adobe Reader forriti.

ISBN 978-9979-0-1990-9


Other products that might interest you