1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Lestrarlandið – Vefur

Lestrarlandið – Vefur

Open product
  • Media
  • Linda D. Ólafsdóttir
  • Product id
  • 2812
  • Age level
  • Yngsta stig
  • Release date
  • 2011

Á þessari vefsíðu má finna myndir úr lestrarbókinni Lestrarlandið til að varpa á vegg og nota sem grunn til að ræða saman. Velja má um hvort myndirnar eru sýndar með eða án texta. Einnig eru krækjur þar sem heyra má sögurnar lesnar. Auk þess má nálgast textann í sögubókinni og skoða hann á skjá ef óskað er. Loks er krækja í vefinn Lesum og skoðum orð í Lestrarlandinu.

 Lestrarlandið – leiðrétting
Á bls. 45 í Lestrarlandinu - Sögubók er notað orðið æður sem samkvæmt Íslenskri orðabók (útg. 2002) er kvenkyns og merkir æðarfugl eða æðarkolla. Þar hefði átt að standa bliki eða æðarbliki. Þetta hefur verið lagfært í pdf-skjali  á þessum vef og það verður einnig gert í næstu prentun bókarinnar. Kennarar eru beðnir að leiðrétta þetta við nemendur þegar sagan er lesin.


Other products that might interest you