1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Neistar – rafbók

Neistar – rafbók

Open product
  • Author
  • Davíð A. Stefánsson og Sigrún Valdimarsdóttir
  • Media
  • Lára Garðarsdóttir
  • Product id
  • 40022
  • Age level
  • Unglingastig
  • Release date
  • 2014
  • Nr. of pages
  • 176 bls.

Neistar er kennslubók í íslensku fyrir unglingastig grunnskóla. Í Neistum snýst íslenskunámið um leik, sköpun, skynjun, rannsóknarvinnu á tungumálinu og öllu okkar umhverfi. Í bókinni eru fjölbreytt verkefni sem ætluð eru til að auka þekkingu og færni í íslensku.

Gagnvirk rafbók þar sem hægt er að fletta bókinni, hlusta á hana lesna og hlaða henni niður sem pdf-skjali.

Í Neistum er lögð áhersla á framsögn, umræður, ritun af ýmsu toga, læsi, málfræði og málnotkun. Neistar snúast um að auka sjálfstraust og getu til að vinna á sjálfstæðan hátt úr þeim efnivið sem unnið er með hverju sinni. Í bókinni er að finna ýmislegt um tungumálið og málnotkun sem hægt er að velta fyrir sér. Stundum eru það hugleiðingar, skýringar á hugtökum eða gagnlegar ábendingar. Einnig er að finna fjölmargar pælingar sem henta vel til umræðna í bekk. Engin verkefnabók fylgir því öll verkefni eru inn í lesbókinni og reiknað er með að þau séu unnin í stílabók. 


Other products that might interest you