1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Norden í skolen - Vefur

Norden í skolen - Vefur

Open product

Norden i Skolen er ókeypis námsgátt fyrir 7.-10 bekk grunnskóla og fyrir dönskukennslu á menntaskólastigi, sem gefur kennurum og nemendum á öllum Norðurlöndum alveg nýja möguleika þegar unnið er með norræn tungumál og menningu, loftslag og náttúru. Norden i Skolen er skipt upp í „Tungumál & Menningu“ og „Loftslag & Náttúru.“ Báðir þessir aðalflokkar innihalda mikið úrval af áhugaverðu efni með verkefnum sem styðja við fagleg markmið í öllum norrænum aðalnámskrám. Í gáttinni finnur þú allt frá vinaflokkum og spjallmöguleikum til stuttkvikmynda, bókmennta, spila og keppna.
Til að geta nálgast kennsluefni á vefnum verða kennarar að stofna aðgang sem er mjög einfalt á þessum vef.
Námsgáttin er rekin án hagnaðar, m.a.styrkt af Norrænu Ráðherranefndinni og er ætluð til notkunar grunn- og menntaskólum. Árið 2011 hlaut námsgáttin verðlaun Norrænu samstarfsráðherranna fyrir nýsköpun sem stuðlar að auknum skilningi barna og unglinga á grannmálunum dönsku, norsku og sænsku á öllum Norðurlöndum.
Megináhersla er efni fyrir 7.–10. bekk og dönskukennslu á menntaskólastigi. Efni fyrir bæði yngri og eldri er væntanlegt.