1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Um víða veröld – Jörðin

Um víða veröld – Jörðin

  • Author
  • Hilmar Egill Sveinbjörnsson
  • Media
  • Ýmsir
  • Product id
  • 7012
  • Age level
  • Unglingastig
  • Release date
  • 2013
  • Nr. of pages
  • 168 bls.

Kennslubók í landafræði, einkum ætluð nemendum á unglingastigi. Bókinni er skipt í átta kafla. Í hverjum kafla er að finna megintexta, rammagreinar til fróðleiks og ítargreinar um áhugaverð málefni. Í lok hvers kafla er að finna fjölbreytt verkefni. Í bókinni er fjöldi korta, skýringarmynda og ljósmynda sem útskýrir lesefnið enn frekar.

  • Fyrsti kaflinn fjallar um tilurð jarðar og jarðsöguna, gang himintungla og ferðir mannsins út í geiminn.
  • Í öðrum kafla er rætt um uppbyggingu jarðar, innri og ytri öfl sem móta landið og breyta. 
  • Í þriðja kafla er fjallað um landakort, hvernig þau nýtast manninum og nýjungar í kortagerð. 
  • Í fjórða kafla er umræða um náttúru, gróður og loftslag. 
  • Í fimmta kafla er fjallað um en höfin, hafstrauma og auðlindir hafsins. 
  • Í sjötta kafla er efni um auðlindir og orku, endurnýjanlega og óendurnýjanlega orku og mikilvægi þess að vanda umgengni við auðlindirnar. 
  • Í sjöunda kafla er gerð grein fyrir búsetu og skipulagsmálum á jörðinni. 
  • Í áttunda kafla kaflanum farið í umhverfismál og velt  upp mörgum áleitnum samfélagsmálum.

 

 

 


Other products that might interest you