1. Home
  2. Þjónusta
  3. Íslenskupróf vegna ríkisborgararéttar

Íslenskupróf vegna ríkisborgararéttar

Mímir - Símenntun hefur umsjón með skráningu og gefur upplýsingar um íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt. 

English version of this website is here.

Skráning í prófið er rafræn  - Skráning
Registration for the test is online - Registration

Haldin að vori í Reykjavík, Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði.
Haldin að hausti í Reykjavík og Akureyri. 

Um prófið
Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt eru haldin tvisvar á ári, að vori og hausti.  Prófið miðast við lokamarkmið í grunnnámi í íslensku fyrir útlendinga (240 stundir), samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins sem samsvarar hæfni A2 á evrópska tungumálarammanum (Common European Framwork of Reference for Language: CEFR). Hér má sjá sjálfsmatsramma fyrir íslensku.

Umsækjandi þarf:

  • að geta bjargað sér við daglegar aðstæður í skóla, vinnu og einkalífi; 
  • að geta bjargað sér við óvæntar aðstæður 
  • að hafa öðlast nægilegt vald á orðaforða til að geta tekið þátt í umræðum um kunnugleg málefni 
  • að geta skilið einfaldar samræður milli manna 
  • að geta lesið stutta texta á einföldu máli um kunnugleg efni 
  • að geta skrifað stuttan texta á einföldu máli um kunnugleg efni 
  • að geta greint aðalatriði í ljósvakamiðlum, sjónvarpi og útvarpi, þegar um kunnugleg efni er að ræða. 

Prófið skiptist í fjóra (4) hluta: Hlustun, lestur, ritun og tal. 
Ekki er gefin einkunn, heldur aðeins tilkynnt hvort próftaki hafi staðist eða EKKI staðist lágmarkskröfur. 

Sýnispróf

Applying for Icelandic citizenship?  Further information at www.utl.is