1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Orðspor 3

Orðspor 3

  • Author
  • Ása Marin Hafsteinsdóttir og Kristjana Friðbjörnsdóttir
  • Media
  • Bergrún Íris Sævarsdóttir
  • Product id
  • 7339
  • Age level
  • Miðstig
  • Release date
  • 2017

Þriðja bókin í nýju námsefni í íslensku fyrir miðstig. 

Orðspor 3 er þriðja og síðasta bókin af heildstæðu námsefni í íslensku fyrir miðstig grunnskóla. Í bókinni læra nemendur um framsögn, ljóðaslamm, fornleifafræði, læsi, ævintýri og málsnið. Nemendur grúska í mismunandi textagerðum og eflast í lestri og ritun. Þá þjálfast þeir einnig í því að taka rökstudda afstöðu og að komast að málamiðlunum.

Bókin skiptist í sjö kafla:

  • Hækkaðu röddina!
  • Geggjað slamm hjá þér
  • Aftur til fortíðar
  • Læsi og lesfimi
  • Eru Grimmsævintýrin grimm?
  • Af máli má manninn þekkja
  • Skólanum hefur borist bréf