1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Listin að lesa og skrifa - Vinnubók 1

Listin að lesa og skrifa - Vinnubók 1

  • Author
  • Arnheiður Borg og Rannveig Löve
  • Media
  • Brian Pilkington
  • Product id
  • 5838
  • Age level
  • Yngsta stig
  • Release date
  • 1996, endurútgáfa 2017
  • Nr. of pages
  • 32 bls.

Í þessari vinnubók eru kenndir bókstafirnir í, ó, s, á, l, a, i og r auk orðmyndanna ekki og og. Bókin var endurútgefin árið 2017 og er nú með hjálparlínum og tengikrókum.

Vinnubókin er hluti af lestrarkennsluefninu Listin að lesa og skrifa sem er fyrst og fremst byggt á hljóðaaðferð. Efnið skiptist í fjórar vinnubækur, lestrarbækur, örbækur, lesspil, kennsluleiðbeiningar o.fl. Í hverri vinnubók eru kenndir átta hljóð/bókstafir. Sama aðferð og sömu vinnubrögð eru viðhöfð í hvert sinn sem nýtt hljóð er kennt og þjálfað. Hver vinnubók hefur mismunandi lit sem einnig er notaður í titla lestrarbókanna sem fylgja henni. Vinnubók 1 fylgja lestrarbækurnar Sísí og Lóló, Í sól, Óli og Ása og Sólás 7. Lestrarkennsluefnið Listin að lesa og skrifa er einkum ætlað nemendum sem þarfnast hægrar og kerfisbundinnar innlagnar á hljóðum og bókstöfum og markvissrar þjálfunar í tengingu hljóða til að ná valdi á lestrartækninni. Lögð er áhersla á hæga stígandi, myndræna framsetningu, skipuleg vinnubrögð og endurtekningu.


Other products that might interest you