Vakin er athygli á nýju efni í stærðfræði:
Safnið mitt
Safnið mitt er lestrarbók fyrir byrjendur í lestri um stærðfræðitengt viðfangsefni. Í bókinni er fjallað um samlagningu.
Það er safnavika í skólanum og Silla ákveður að taka þátt en hún á ekkert safn. Hverju getur hún fundið upp á?
Sagan tengir stærðfræði við daglegt líf nemenda á skemmtilegan hátt.
Bókin nýtist kennurum við kennslu á nýju viðfangsefni og eins nemendum við lestrarþjálfun.
Ljósin í blokkinni
Ljósin í blokkinni er lestrarbók fyrir byrjendur í lestri um stærðfræðitengt viðfangsefni. Í bókinni er fjallað um frádrátt.
Kötu langar til að fá að vaka lengst af öllum í hverfinu. Þess vegna þarf hún að fylgjast með ljósum nágrannanna.
Sagan tengir stærðfræði við daglegt líf nemenda á skemmtilegan hátt.
Bókin nýtist kennurum við kennslu á nýju viðfangsefni og eins nemendum við lestrarþjálfun.
Dúndurstrákurinn
Dúndurstrákurinn er lestrarbók fyrir byrjendur í lestri um stærðfræðitengt viðfangsefni. Í bókinni er fjallað um sætisgildi.
Nói reynir að finna leið til að safna 10 000 umbúðum af orkustöngum. En hvernig getur hann talið allt sem safnast?
Sagan tengir stærðfræði við daglegt líf nemenda á skemmtilegan hátt.
Bókin nýtist kennurum við kennslu á nýju viðfangsefni og eins nemendum við lestrarþjálfun.
Stuð á stærðfræðisýningu
Stuð á stærðfræðisýningu er lestrarbók fyrir byrjendur í lestri um stærðfræðitengt viðfangsefni. Í bókinni er fjallað um form.
Sindri og félagar hans slá heldur betur í gegn á stærðfræðisýningunni með óvæntu, ófyrirséðu atriði.
Sagan tengir stærðfræði við daglegt líf nemenda á skemmtilegan hátt.
Bókin nýtist kennurum við kennslu á nýju viðfangsefni og eins nemendum við lestrarþjálfun.
Við minnum á námsefnissýninu og örkynningar Menntamálastofnunar sem kallast Náms-örk og fer fram í Smáraskóla, 14. nóvember kl. 14:30 - 16:30.
Hér má sjá yfirlit yfir nýútkomið námsefni.