Íslenski málhljóðakassinn er nú aðgengilegur á rafrænu formi og hægt er að prenta efnið út eftir þörfum.
Á vefnum eru allir orðalistar og myndir auk bókstafa og fjölbreyttra hugmynda að vinnu með kassann.
Efnið má nota með nemendum á öllum aldri og ÍSAT-nemendum til að kenna og leiðrétta framburð, þjálfa hlustun og hljóðgreiningu, efla orðaforða og hugtakanotkun og undirbúa lestur og ritun.