Margföld vandræði og Allir vinna eru nýjustu bækurnar í flokknum Stærðfræði og bókmenntir en þær fjalla um margföldun og deilingu.
Í flokknum eru lestrarbækur sem allar fjalla um stærðfæðileg viðfangsefni þar sem leitast er við að draga börnin inn í söguna og tengja þannig við stærðfræði í daglegu lífi.
Með hverri bók fylgja tvö verkefnahefti.