Menntamálastofnun býður upp á rafræna kynningu á ensku efninu Yes we can 5 mánudaginn 6. september klukkan 14:30.
Til umfjöllunar verður uppbygging nemendabókar, verkefnabókar, kennsluleiðbeininga ásamt rafrænu efni sem fylgir bókunum.
Ritstjóri efnisins Arna Guðríður Sigurðardóttir sér um kynninguna.
Kynningin fer fram á Zoom og hægt er að tengjast henni hér.
Nú er hægt að panta allt efni tengt Yes we can 5 á pöntunarsíðunni.