Í dag opnuðum við tvö desemberdagatöl sem henta fyrir yngsta stig.
Desemberdagatölin koma úr smiðju Önnu Kristínar Arnarsdóttur og Svövu Þ. Hjaltalín sem báðar eru grunnskólakennarar. Verkefnin eru miðuð að nemendum í 1. og 2. bekk.
Markmið með desemberdagatölunum er að bjóða kennurum og nemendum upp á fjölbreytni í skólastarfi. Höfundar lögðu upp með að hafa verkefnin nógu fjölbreytt og flétta saman íslensku, stærðfræði ásamt verklegri og skapandi vinnu.
Desemberdagatal 1 og 2 -tengill
Desemberdagatal 3 og 4 -tengill