1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Vinátta - Fri for mobberi

Vinátta - Fri for mobberi

  • Author
  • Barnaheill
  • Product id
  • 6810
  • Age level
  • Yngsta stig
  • Release date
  • 2023

Námsefnið Vinátta (Fri for mobberi) fyrir 1.-4. bekk grunnskóla er nú komið í dreifingu hjá Menntamálastofnun og stendur öllum grunnskólum landsins til boða. Hámark 2 töskur á skóla á meðan birgðir endast.

Vinátta er forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti og kom fyrst út árið 2014 og þá fyrir 3.-6. ára leikskólabörn. Ungbarnaefni kom út árið 2019. Nú er efnið í notkun í yfir helmingi leikskóla á Íslandi. 

Námsefnið fyrir grunnskóla kemur í blárri tösku og inniheldur bangsann Blæ, 21 stk. stór samræðuspjöld, verkefnahugmyndir og leiki. Auk þess eru kennsluleiðbeiningar fyrir kennara og veggspjöld. 

Innifalið í námsefninu er eins dags námskeið sem panta þarf í gegnum Barnaheill. Á námskeiðinu er fjallað um þær rannsóknir og hugmyndafræði sem Vinátta byggir á og hvernig innleiða má efnið í skólastarf.