1. Forsíða
  2. Námsefni
  3. Ég og samfélagið

Ég og samfélagið

  • Author
  • Garðar Gíslason
  • Media
  • Blær Guðmundsdóttir
  • Product id
  • 7330
  • Age level
  • Miðstig
  • Release date
  • 2024
  • Nr. of pages
  • 136 bls.

Ég og samfélagið er kennslubók sem er ætluð nemendum á miðstigi  grunnskóla. 

Eitt af því sem við eigum öll sameiginlegt, sama hvar við  búum í heiminum er að tilheyra samfélögum. Sum þeirra eru agnar smá eins og til dæmis fjölskyldan meðan önnur eru miklu stærri. Öll hafa  þessi samfélög áhrif á hver við erum og hvernig við hegðum okkur. Við höfum líka áhrif á samfélög okkar, reyndar mismikil eftir því hversu  stór þau eru. Fjölskyldan hefur til dæmis mikil áhrif á hver og  hvernig við erum en við gjörbreyttum líka lífi fjölskyldunnar þegar við  fæddumst. Allt líf á jörðinni tilheyrir samfélögum en hér er aðallega verið að skoða samfélög sem nemendur tilheyra og áhrif þeirra.  Með samanburði við íslensk samfélög fyrr á  tímum og aðra menningarheima er meðal annars leitað svara við eftirfarandi spurningum: Hvaðan fáum við upplýsingar  um það sem er að gerast umhverfis okkur? Hvað eru samfélagsmiðlar? Má  segja hvað sem er eða birta myndir af vinum á netinu? Af hverju  ráða sumir meiu en aðrir? Hver býr til reglur sem við þurfum öll að  fara eftir? Eru reglur eins alls staðar í heiminum?


Other products that might interest you