1. Forsíða
  2. Framhaldsskólar

Framhaldsskólar

  • Aðgangspróf fyrir háskólastig

    Aðgangspróf fyrir háskólastig eða A-próf er almennt og samræmt hæfnipróf sem notað er af deildum Háskóla Íslands við val á nemendum inn í grunnnám á háskólastigi. Í A-prófinu reynir á færni í málnotkun, talnaleikni, rökhugsun, lesskilningi og fleiri þætti. Prófið var þróað út frá erlendum fyrirmyndum svo sem SweSAT í Svíþjóð og ACT og SAT í Bandaríkjunum.

    A-prófið á það sameiginlegt með þessum prófum að því er ekki ætlað að prófa einstök þekkingaratriði úr námsefni framhaldsskólans. Þess í stað er A-prófið hugsað sem hæfnipróf (e. aptitude test) sem prófi áunna færni nemenda eftir framhaldsskólanám og spáir þar með fyrir um getu þeirra til að ná árangri í háskólanámi. Niðurstöður úr fylgnirannsóknum gefa til kynna að A-próf spái vel fyrir um árangur í háskólanámi.

    Aðgangspróf fyrir háskólastig

  • Ytra mat framhaldsskóla

    Menntamálastofnun hefur umsjón með ytra mati á leik-, grunn- og framhaldsskólum fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis.

    Í ytra mati felst að utanaðkomandi aðili leggur mat á starfsemi viðkomandi skóla með hliðsjón af gildandi lögum, reglugerðum og aðalnámskrám. Er það meðal annars gert með því að skoða fyrirliggjandi gögn um starfsemi skóla, heimsóknum úttektaraðila og viðtölum við nemendur, starfsfólk skóla og foreldra. 

    Á hverju ári ákveður ráðuneyti fjölda og hvaða framhaldsskólar eru metnir, samanber lög nr. 92/2008 um framhaldsskóla, gildandi reglugerðir um mat og eftirlit og þriggja ára áætlanir mennta- og menningarmálaráðuneytisins um úttektir á þessu skólastigi. Meta skal framhaldsskóla á fimm ára fresti skv. 42. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla.

    3.1.1.1 Markmið og tilgangur ytra mats á grunnskólum

    Meginstef ytra mats er að það sé leiðbeinandi og framfara- og umbótamiðað og stuðli að betri skóla. Leiðarljósið er ávallt nemandinn, réttur hans og þarfir.

    Markmið mats og eftirlits með gæðum starfs í framhaldsskólum er samkvæmt 40. grein laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 að:

    1. veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks framhaldsskóla, viðtökuskóla, atvinnulífs, foreldra og nemenda
    2. tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár framhaldsskóla
    3. auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum
    4. tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum.

    Með ytra mati er unnið að öllum þessum markmiðum og lögð sérstök áhersla á að efla og styðja innra mat og gæðastjórnun skóla, styðja skóla, stjórnendur og kennara í umbótum á eigin starfi, hvetja kennara til að vinna saman að því að bæta eigin starfshætti og vera skólum hvati til frekari skólaþróunar.

    Matsviðmið og siðareglur

    Grundvöllur ytra mats á framhaldsskólum eru matsviðmið ætluð bæði til innra- og ytra mats og eru samin af mennta- og menningarmálaráðuneyti. Viðmiðin eru einkum fengin úr lögum, reglugerðum og aðalnámskrá fyrir framhaldsskóla. Við gerð leiðbeininganna var einnig tekið mið af góðum fyrirmyndum úr Sameiginlega sjálfsmatsrammanum, CAF (Common Assessment Framework). Sjálfsmats­ramminn hefur verið þróaður frá árinu 2000 af tengslaneti opinberra stofnana í Evrópu til að aðstoða stofnanir við að bæta sig stöðugt.

     

     

     

    Skýrslur um ytra mat birtast þegar ráðuneyti og skólar hafa fengið niðurstöður.

    Skýrslur 2014 á pdf:  Þóra tekur saman

  • Hæfnirammi um íslenskt menntakerfi

    Hæfnirammi um íslenskt menntakerfi er í þróun. Allt nám í framhaldsskólum er sett á hæfniþrep um menntun eins og þau eru fram sett í aðalnámskrá framhaldsskóla frá 2011. Rannís stýrir vinnu við þróun íslenska hæfnirammans.

  • Aðgerðir gegn brotthvarfi úr framhaldsskólum

    Ábyrgðaraðili: Kristrún Birgisdóttir, sími: 5147588, netfang: kristrun.birgisdottir(hjá)mms.is
    Brotthvarf úr framhaldsskólum - Skýrsla

  • Umsýsla með FS - neti

    Umsýsla með FS - neti

    Háhraðanet fyrir framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar sem skapar nútímalega upplýsingahraðbraut milli menntastofnana sem nýta má við skólastarf, s.s. fjarkennslu, fjarnám og samstarf.

    Sjá nánar hér.

    Fyrirspurnir varðandi innheimtu og reikninga má senda á netfang: fsnet hjá mms.is