1. Forsíða
  2. Bildetema | Myndaorðabók á netinu

Bildetema | Myndaorðabók á netinu

Nú er íslenska í fyrsta sinn hluti af Bildetema sem er vefur gefinn út í norrænu samstarfi. Um er að ræða endurgerð myndaorðabókar á netinu sem er öllum opin.

Bildetema er á mörgum tungumálum með myndum, texta og hljóði sem skipt er upp í þemu. Þar er einfaldur orðaforði sem getur verið kveikja að vinnu með tungumál í leikskóla, grunnskóla og í fullorðinsfræðslu.

Vefnum er stýrt af Nasjonalt senter for flerkulturell opplæring (NAFO) ved OsloMet – háskólann í Noregi í samstarfi við Institutet för språk och folkminnen (Isof) í Svíþjóð, Miðju máls og læsis á Íslandi og Nationalt Videncenter for Læsing í Danmörku. Allar stofnanirnar fjórar vinna að því að efla tungumálahæfni barna, unglinga og fullorðinna.

skrifað 12. JAN. 2023.